Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

hmm

12. júlí 2007 klukkan 18:37

Merkilegt nokk hvað maður getur verið viðbjóðslega latur við að blogga... Hafði hugsað mér að gera það oft og mörgu sinnum á meðan Tommi var á höfn... En einhvernvegin fékk ég það aldrei af mér...

Undanfarnir dagar hafa einkennst af vinnu, Las Vegas og svo lærdómi annað slagið.  Familíjan hefur ekki sést seinustu tvær vikur, en þau eru flutt í fellihýsið og koma ekki heim nema bara til að hlaða rafmagni á villidýrið öðru hverju.

Eftir mánuð eða svo eigum við Coxi svo loksins árs afmæli, og er planið að halda annaðhvort til Reykjavíkur eða Akureyrar og halda uppá þessa merkis tíma.

Ég sakna ógurlega mikið Robba...Hann virðist ætla að vera heila eilífð í UK...
Ég sakna líka Esterar í augnablikinu...Hún er bara enþá í vinnunni.... Kíki í heimsókn til hennar á eftir.

æji hvern er ég að reyna blekkja ? ég nenni sko ekkert að blogga....

dæmalaust íslenskt....

05. júní 2007 klukkan 15:27
Ég slysaðist inn í Kaupfélag Héraðsbúa í morgun.  Þar var allt á hvolfi vegna kaldavatns-leysis og starfsmenn í miklu tjúlli við að koma vörum í kælingu.  Í öllu stressinu fylgdist ég með 4 bandarískum konum sem króuðu af einn karlkyns starfsmann um fertugt.  "Do you have any cheese in the store? heyrði ég þær baula hver í kapp við aðra.  Afgreiðslumaðurinn sýndi engin merki um skilning, og gapti bara útí loftið.  "Do you have any CHEESE here?" endurtók forsprakki hópsins.  Afgreiðslumaðurinn gapti meira.  "Do-you-have-any-cheese? you know... 'fromage'
Afgreiðslumaðurinn ljómaði allur af hamingju, veifaði eins og brjálæðingur og gólaði:  GUNNI!! EIGUM VIÐ EINHVERN FRÓMAS????

Á leiðinni út mætti ég þeim ostlausum og benti þeim á að fara í hraðbúðina -þar sem þær loksins fengu ostinn sinn....

2 júní....

02. júní 2007 klukkan 12:49
Gleði gleði.. Í gær voru tveir viðskiptavinir sem sögðu mér að halda kjafti.. Einn sem bölvaði svo mikið að það er ekki prenthæft og svo voru nokkrir sem yfirgáfu staðinn með fýlusvip.  Já.... reykingarbannið er tekið í gildi og fólk tekur því svona misvel...

Á miðvikudaginn ætla ég að keyra Tomma á höfn, og aldrei að vita nema ég hendi mér í bæinn yfir helgina.  Tommi verður að vinna á eddu-hótelinu þarna rétt fyrir utan höfn.. Sökkessfokker... Svo fara Siggi og Andri út til Búlgaríu 11jún..Robbi náttúrulega kominn aftur til UK.... Þá á ég ekki mikið af viðstöddum vinum eftir... Ætli ég eyði ekki bara dögunum í að hoppa á trampólíninu með Lúkasi...

æjjj ætla reyna henda mér í sturtu og fara að vinna....

prófpróf...

08. maí 2007 klukkan 20:01
Hverjum datt til hugar að troða öllu þessu námsefni í einn áfanga ???? (þá á ég við andsk. ísl 303)

Ég er komin með svoleiðis uppí háls af lærdómi að mér er farið að svima.

Íþróttaprófið gekk mjög vel
Enskuprófið var ekki mjög krefjandi fyrir utan eitt verkefni sem mér fannst svolítið kjánalegt
Í stjórnmálafræði prófinu gaf ég skáldagyðjunni í mér lausan tauminn og skrifaði heilan helling um eitthvað sem ég þóttist vita
Stærðfræðiprófið óttaðist ég mest en ég held að ég hafi stungið væntingar mínar af og rústað því

Þá eru búin fjögur... tvö eftir, og þar á meðal íslenskan...
Ekki misskilja mig.. ég er afburða góð í íslensku, og með eindæmum skilningsrík á alla málfræði.
Brennu-Njála og ljóðrænn skáldskapur hefur þó ekki en vakið nægan áhuga hjá mér... Það gæti orðið mér að falli (nei djók)!

Afþví að ég nenni ekki að læra núna þá snaraði ég inn nokkrum myndum af vinum og vandamönnum (nei aftur djók... ég setti inn myndir af mér (aðalega)) á myspace-ið mitt, bara svo robbi geti haft pósu myndir af mér næst þegar hann gerir slide show.

Viðbót...

16. apríl 2007 klukkan 13:57
ooo kjáni ég að gleyma að segja frá því hvernig

ÉG ER BÚIN AÐ RÚSTA STRÁKRÆFLUNUM MÍNUM Í PÓKER TVÖ SEINUSTU SKIPTI... (af þremur )

ooo það er erfitt að vera svona mikill player....

páskar?

15. apríl 2007 klukkan 21:06
ooo.. ég get nú ekki annað sagt en að páskarnir mínir hafi verið betri en allir páskar hingað til (fyrir utan það þegar ég var fermd og fékk endalausa pakka og athygli.. égégégégégégégégég...(alveg eins og Róbert Bjarnar...)

Ég og Tommi flugum út til London 2 apríl.  Gistum á yndislegu litlu pakistana gistiheimili rétt hjá Stansted flugvellinum, og flugum svo út til Alicante morguninn eftir.  Þegar þangað var komið  lentum við í rúmlega hálftíma taxaferð til Torreveja og svo nokkrar mínútur í að leita að húsinu okkur sem var í Laguna Golf.

Við, orkuboltarnir einu og sönnu, nenntum sko heldur betur ekki að hanga inni í góða veðrinu, þannig að við skelltum okkur í gönguferð -svona til að kynnast svæðinu áður en að familyan lét sjá sig.  Eftir fjögurra tíma göngu komumst við að því að...
a) á svæðinu þar sem við vorum bjuggu einungis bretar
b) allir matsölustaðir voru þar af leiðandi breskir
c) Spánn er skítugur staður
d) Það skein albinóalúkk af Tomma þegar hann loksins reif sig úr að ofan

Um kvöldið reyndum við svo að koma okkur huggulega fyrir í sófanum, með von um gott sjónvarpsefni og pínulítið nammi úr fríhöfninni.
Sá draumur hrapaði niður fjórar hæðir og flattist út við lendingu.  Í sjónvarpinu gátum við valið um tíu stöðvar sem voru döbbaðar á spænsku, og tíu stöðvar döbbaðar á þýsku.
Við völdum að fara á barinn.

Sem betur fer rákumst við á götusölumann eftir smá bjór og keyptum af honum dvd myndir til að horfa á heima.  Við sofnuðum svo bæði eftir að hafa sett fyrstu myndina í tækið.

Við eyddum deginu á eftir í long walks on the beach (mjög rómó og krúttulegt) í æðiislega góðu veðri, sól og 25°+, og svo komu mamma, pabbi og bræður mínir seint um kvöldið.  Með þeim komu líka skýin og rigningin.  Fengum nú samt alveg slatta af góðum heitum dögum inn á milli. 

Ég held að Tommi og pabbi hefðu höndlað sólin svona verst, en þeir fengu báðir mjög smart lúkk eftir sólina.  Tommi með hvítt hálsmen aftan á hálsinum -og eeeldrauður annarstaðar, en pabbi leit út fyrir að hafa farið í sólbað í alltof litlu bikini... En samt sem áður eld"brúnn" annarstaðar.

Þegar við fórum heim þurftum við að taka fjórar flugvélar... sem var ekki mjög spennandi.  Byrjuðum á því að fljúga til Barcelona þar sem við eyddum nokkrum klukkustundum, hittum samt ekki Eið Smára... Svo flugum við til London þarsem gleðin hófst fyrir alvöru.   Við flýttum okkur út úr flugvélinni og eltum einhverja Breta niður í baggage claim í Terminal eitt.  Þá kom í ljós að nánast allir "útlendingarnir" (ss. ekki spanjólarnir) höfðu ekki fengið skilaboðin um að töskurnar okkar myndu enda í terminal 2.  Ég kýs að kenna spænska flugfélaginu um; anna hvort tilkynntu þeir það ekki á ensku eða við vorum bara ekki að hlusta...
Þannig að ca 20 manna hópur endasentist um allan Heathrow að leita að hinu baggage claim-inu, sem við fundum en máttum ekki fara inní að öryggisástæðum.  Eftir mikla bið komumst við þó inn og sóttum töskuna okkar.  Þá var að finna Iceland Air.  Við villtumst inní Terminal 4 og þar vissi fólk ekki hvað Iceland Air var.  Þannig að við tók rúmlega tuttugu mínútna hlaup um Heathrow (aftur).

Við fundum loksins flugfélagið, og við check inn var hlegið af því hvað við vorum sveitt.
Þá hló ég með.
Þegar við sátum í flugvélinni, stuttu síðar, þá hló ég ekki þegar Tommi hreyfði sig.  Þá var ég nær því að fara að grenja.  Ég meina; ég elska Tomma meira en allt - en svitafýlan var óbærileg.

Sváfum á hótel Loftleiðum þá nótt og flugum svo austur með hádegisvélinni á laugardeginum.

Í heildina séð mjööööög góð ferð..

Saknaði mest Robba, Nínu og auðvitað Ásdísar.  Næst tek ég þau með.. og auðvitað Sigga og Andra!

Changes...

28. mars 2007 klukkan 15:06


Fyrir alla þá sem eru áhugasamir hefur msn-inu mínu verið breytt í margret_irma@hotmail.com

Einni hef ég gert athyglisverða tilraun að stofna til myspace síðu... www.myspace.com/margretirma ef ykkur langar að kíkja...

....

27. mars 2007 klukkan 10:51

Í gær lenti ég í svakalegum atburði...
Þar sem ég var í mínum mestu makindumí sturtunni í gærkvöldi, að skola af mér brúnkukremið, réðist að mér eitt stykki big fat kónguló.  Hún klifraði klessulega upp sturtu bakkann og plantaði sér við útganginn á sturtuklefanum...  Ég, í stað þess að fríka út, tók þessu með stökustu ró og kláraði að skola á mér hárið.  Hoppaði svo fislega yfir bakkann - og kóngulónna í leiðinni, og opnaði hurðina fram.  Ég vissi það að í hinu herberginu voru Tommi og París.

Að kalla á annan myndi skapa mikið kaos, en ef ég myndi kalla á hinn þá væri möguleiki á að leysa málið án nokkurs hávaða.  Ég þurfti að taka þessa drastísk ákvörðun á split second og mátti engan tíma missa...

Ég fann hvernig vatnið seytlaði úr hárinu á mér og hvíslaði...: París.. komdu.. kiskiss...

París elti mig inná bað, og varð merkilega kát þegar ég benti henni á kóngulóanna.  Hún lék sér að henni í smá stund og skellti svo loppunni ofan á hana og át hana síðan.

Ég sagði svo Tomma frá hættunni sem hafði skapast.  Honum var töluvert meira brugðið en mér :)
____________________________________________


Í dag eru 5 dagar þangað til við Tommi förum suður.  Sem þýðir að það séu 6 dagar þangað til við förum til London.  Í rauninni er það ekki það merkilegasta því það eru 7 dagar þangað til við förum yfir til Alicante.

Hverjum langar að passa undraköttinn París á meðan við erum ekki heima ?

helgin

01. mars 2007 klukkan 09:49
OOOO.. herregjuud....

Ég horfði á Britains next top model gær eftir að Nína taldi mig á það.  Það kom mér á óvart að stelpurnar í þeirri keppni eru næstum því jafn ljótar og flesta stelpurnar í ungfrú suðurland! Nó offens...
Anyways þá var þetta merkilega leiðileg og ódýr útgáfa af Americas next top model - sem er alls ekki slæmt plott ef maður er með leggöng.
Bresku stelpurnar voru alveg jafn miklar grenjuskjóður og þær Amerísku, þær voru alltof spenntar og þakklátar fyrir að vera þarna, og það var engin diva á meðal keppanda.. Gellan sem sér um hlutverk Tyru er svo einhver no name sem var einu sinni að deita George Clooney... Hún þarf nú að vera með helvíti stóra fætur ef hún ætlar að fylla uppí sporin hennar Tyru..
Ekki minn tebolli.

En svona aftur í raunveruleikann... Matarboð og spilakvöld heima hjá Nínu og Vigga á föstudaginn... Ef mér tekst að fótbrjóta Tomma þannig hann verði ekki að væla um fótboltaæfinguna sem hann verður að missa af.
Planið er að elda einhverja delisjoss önd og fínar kartöflur, og svo ætlum við Thomas að koma með eftirrétt.
Eftir matinn tekur við spilakvöld þar sem stefnan er að fara í "leirspilið"
Seinast þegar ég leiraði var ég orðin svo þreytt á því að sitja að leir kennarinn bauð mér að fara út og leika mér í frisbee...

Jæja... tíminn búinn...

valentines day...

14. febrúar 2007 klukkan 17:15

oooooo... afþví ég er svo mikill kjúklingur og sökker for rómance þá ákvað ég að halda uppá valentínusardaginn... Tommi var búinn að segja að honum þætti það kjánalegt því þetta er útlenskur dagur.  Það er í rauninni rétt, og konudagur + bóndadagur ættu alveg að nægja... en hú kers?

Afþví ég er svo mega næs og góð kæró þá fór ég og verslaði raksápu og nokkur krem og drasl í apótekinu... Keypti svo peysu sem Tommi minn er búinn að þrá lengi, og að lokum verslaði ég rós og hjarta límmiða.


Eftir smá tiltekt og heilmikið föndur varð niðurstaðan mjög svo rómó...
Image and video hosting by TinyPic" Gjafabréf uppá kel og knús....

Image and video hosting by TinyPic
óótrúlega kúl þótt ég segi sjálf frá...

Tommi er að vinna til 9 þannig að ég þarf að bíða eftir að geta komið honum á óvart.... oooo það er svo erfitt vegna þess hversu spennt og rómó ég er.. nei það er plat... ég er aðalega spennt að geta grobbað því í hann að ég fékk 9,5 á stærðfræðiprófinu sem ég tók í seinustu viku...

Ég hef ekkert að segja... langaði bara að setja inn myndirnar....