Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Eigum við að tala um endurkomu eða hvað!?

13. júlí 2006 klukkan 09:20
Síðan ég kom heim til íslands hefur fátt annað komist fyrir í huga mér en vinna og Beverly Hills 90210.  Ég vinn eins og moðerfokker allan daginn og kem heim uppúr miðnætti -just in time til að sjá Beví.  Svo sef ég þangað til ég þarf að mæta aftur í vinnuna.

Ég er að vitaskuld búin að taka eitt ágætis djamm sem fól nú samt bara í sér bjórdrykkju á Hetjunni.  Það var aðalega hugsað sem svona "hunting" ferð.  En svo kom í ljós að það er engin bráð á austurlandi.  Óheppin ég.

Mamma og litli bró eru í Belgíu, þar sem brói er að brillera í fimleikunum.  Að hans sögn er víst svo heitt þarna að hann er farinn að líta út eins og skaðbrenndur hamborgari.

Ég, pabbi, litli-litli bró erum því bara þrjú í kotinu með ömmu og afa í heimsókn sem sjá alfarið um þrif og pössun.  Mér til mikillar hamingju.  Ég hef samt ekki séð þau nema tvisvar síðan seinasta föstudag, því ég er alltaf að vinna eða sofandi.  Þau virðast samt toppa mig í svefnpurku skapnum þarsem þau sofa amk 12 tíma á sólahring.

Í gærkvöldi horfði ég á mjög svo spennandi mynd með Jared Leto (sem var í einni uppáhalds myndinni minni; Requiem for a dream).  Myndin heitir Highway og mér fannst hún mögnuð vegna þess að í fyrsta lagi lék Jared Leto einn þann mest hot sexy redneck bitch sem ég hef nokkurntíman séð, í öðru lagi var líka Jake Gyllenhaal þarna, sem er mjög spes, og í þriðja lagi var Dr. Perry Cox(John C. McGinley) úr Scrubs þarna líka með dredda!

Ég skil ekkert í þessu.... Ég get gjörsamlega drukknað  í þessu helvítis sjónvarpi og ég sé bara enga von um að geta kraflað mig uppá bakka heilbrigðleikans á ný...


Sjónvarpið er minn veikleiki... Það er alveg komið á hreint....

hot sexy hillbilly bitch
Segið mér svo að þetta sé ekki heitt!